Sigríður Theódóra á Selfoss (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir


Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir er gengin til liðs við Selfoss. Hún mun leika með liðinu í sumar á láni frá Val.
Sigríður er fædd árið 2005 en hún fer til Tenerife þar sem hún hittir nýju liðsfélagana eftir landsliðsverkefni með U19 í vikunni.
Hún kom við sögu í 7 leikjum í Bestu deildinni síðasta sumar þegar Valur varð Íslandsmeistari.
“Við erum mjög spennt að fá Siggu til liðs við okkur til að auka breiddina á miðjunni hjá okkur. Hún er mjög efnileg og fjölhæf og mun gefa okkur nýja vídd inni á miðjunni,” segir Björn, þjálfari Selfoss.





