Fotbolti.net
03.05.19 - 09:44
Arnar Daði Arnarsson

Anna María: Mikill stígandi í liðinu

Auglýsing
Anna María Baldursdóttir í leiknum í gær.

Anna María Baldursdóttir í leiknum í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Anna María Baldursdóttir fyrirliði Stjörnunnar var ánægð eftir 1-0 sigur á Selfossi í 1. umferð Pepsi Max-deildarinnar í gærkvöldi.

Eina mark Stjörnunnar skoraði Birna Jóhannsdóttir um miðbik fyrri hálfleiks.
„Við stefndum á það að fá góð úrslit í byrjun og það tókst. Þetta var frekar jafn leikur til að byrja með og síðan komumst við á skrið í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik þá dró aðeins af okkur og við byrjuðum að falla og þeir sóttu á okkur. Mér fannst þær samt ekki fá nein dauðafæri en við héldum þetta út."

Miklar breytingar urðu á Stjörnuliðinu frá síðasta tímabili. Það var ekki að sjá á leik liðsins í gær.

„Við erum búnar að ná að stilla okkur saman og við ættum að verða betri með hverjum leiknum," sagði Anna María en leikurinn í gær var hörkuleikur tveggja sprækra liða. Selfoss var spáð falli í spá Fótbolta.net fyrir tímabilið.

„Ég hef enga trú á að þær falli. Mér finnst þær vel spilandi lið og þær eiga eftir að fá einhverja fleiri úr háskólaboltanum. Þær verða um miðja deild held ég."

Anna María viðurkennir að það hafi tekið á að stilla saman strengi í vetur með algjörlega nýjum leikmannahópi.

„Þetta tók tíma fyrst og allir að kynnast bæði innan og utan vallar en mér finnst mikill stígandi í liðinu seinustu mánuði. Æfingaferðin þétti hópnum vel saman og þetta hefur gengið vel," sagði fyrirliði Stjörnunnar að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.