Fotbolti.net
03.06.17 - 09:00
Elvar Geir Magnússon

Rikki Daða: Heildin miklu sterkari en einstaklingarnir

Auglýsing
Ríkharður Daðason.

Ríkharður Daðason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Ríkharður Daðason, fyrrum sóknarmaður íslenska landsliðsins, er nýr í landsliðsnefnd. Fótbolti.net ræddi við hann þegar landsliðshópur Íslands fyrir stórleikinn gegn Króatíu var opinberaður í gær.
„Það þarf flest að ganga upp til að við getum unnið Króatana,\" segir Ríkharður.

„Við spiluðum að mörgu leyti fínan leik við þá í haust og gerðum vel. Við lærum inn á þetta. Ásgeir Elíasson heitinn stuðaði spænsku pressuna þegar Fram spilaði við Barcelona með þriggja ára millibili. Þegar hann var spurður að því hvort hann héldi að liðið gæti unnið Barcelona sagði hann \'Já, ef við myndum spila 20 leiki myndum við örugglega vinna einn\'. Þú lærir á andstæðinginn og fótboltinn er þannig að betra liðið vinnur ekki alltaf. Við eigum alltaf að trúa.\"

„Heildin er miklu sterkari en einstaklingarnir. Það er okkar helsti styrkur sem landslið. Þetta lið hefur sýnt það í fjögur til fimm ár. Þegar strákarnir koma inn í þetta verkefni hugsa þeir pottþétt að nú sé komið að því (að vinna Króata) og labba inn í völlinn með fulla trú á því að þeir geti klárað verkefnið.\"

„Það er gaman að keppa við þá bestu og reyna að vinna þá. Menn bera virðingu fyrir því sem menn hafa gert áður en þegar út á völlinn er komið gera menn allt til að hafa betur,\" segir Ríkharður en spjallið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.