Fotbolti.net
03.06.20 - 12:00
Magnús Már Einarsson

Ighalo: Vil fara hærra og hærra með Man Utd

Ighalo: Vil fara hærra og hærra með Man Utd
Canon

Mynd: Getty Images

Odion Ighalo er mjög ánægður með að hafa framlengt lánssamning sinn hjá Manchester United.

Ighalo kom til Manchester United í janúar síðastliðnum en í vikunni framlengdi félagið lánssamninginn við Shanghai Shenhua til 31. janúar á næsta ári.
„Ég er mjög ánægður. Það er draumur fyrir mig að vera hér. Ég er mjög spenntur og klár í slaginn," sagði Ighalo.

„Eins og ég hef sagt. Ég hef verði stuðningsmaður félagsins síðan ég var ungur og það er draumur að spila hér. Núna hef ég framlengt lánssamninginn minn og ég er skuldbundinn til að vera hér þar til í lok janúar."

„Ég vil leggja hart að mér og njóta þess. Ég vil hjálpa liðinu og gera allt sem vð getum til að fara hærra og hærra."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.