Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   þri 03. júní 2025 09:02
Elvar Geir Magnússon
Bruno ákvað að hafna Sádi-Arabíu og vera áfram hjá Man Utd
Bruno ákvað að vera áfram hjá Manchester United.
Bruno ákvað að vera áfram hjá Manchester United.
Mynd: EPA
Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, hefur hafnað því að fara til Sádi-Arabíu þrátt fyrir risatilboð frá Al-Hilal.

Félagið bauð Fernandes 700 þúsund punda vikulaun og samning sem gæti numið 100 milljónum punda yfir þrjú ár, auk þess að félagið hefði borgað Manchester United 100 milljóna punda kaupverð. Fernandes kaus hins vegar að hafna tilboðinu.

Þrátt fyrir erfitt tímabil hjá Manchester United valdi Fernandes að vera áfram hjá félaginu. Fjölskyldu hans líður vel í Manchester og hann vill halda áfram að spila á hæsta stigi Evrópuboltans.

Rúben Amorim, stjóri Manchester United, hefur verið mjög ákveðinn í svörum að hann vilji halda Bruno hjá liðinu og nú hefur honum orðið að ósk sinni.
Athugasemdir
banner