Það eru átta vináttulandsleikir á dagskrá í dag þar sem má finna nokkur lið sem eru að leggja lokahönd á undirbúning sinn fyrir HM.
Gvam, Kirgistan og Jómfrúaeyjar mæta til leiks í dag áður en tilvonandi HM-þjóðir eiga leiki.
Kongó og Danmörk eigast við í Belgíu en Kongó er í riðli með Portúgal, Úsbekistan og Kólumbíu á meðan Danir misstu af sæti á lokamótinu eftir tap gegn Tékklandi í umspilinu.
Ítalía spilar svo við Lúxemborg á sama tíma og HM-þjóðirnar Holland og Alsír eigast við í áhugaverðum slag.
Að lokum eigast Pólland og Nígería við í viðureign tveggja þjóða sem komust ekki á HM. Albanía og Ísrael mætast einnig.
Vináttulandsleikir dagsins
11:30 Filippseyjar - Gvam
14:30 Kirgistan - Kenía
17:00 Gibraltar - Jómfrúaeyjar
18:00 Albanía - Ísrael
18:00 Kongó - Danmörk
18:45 Lúxemborg - Ítalía
18:45 Holland - Alsír
18:45 Pólland - Nígería
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!





