03.07.20 - 21:52
Mist Rúnarsdóttir
Aldís María: Líður mjög vel á Króknum
Auglýsing

Aldís María er hér fyrir miðju í leik með Hömrunum sumarið 2018

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

<i>„Mér fannst þetta ganga vel. Við gerðum allt sem við ætluðum okkur og náðum að klára með sigri,“</i> sagði Aldís María Jóhannsdóttir sem átti góðan leik í liði Tindastóls sem vann 3-1 sigur á Víkingum í kvöld.
Aldís María skoraði fyrsta mark leiksins og lagði svo upp annað markið.
„Ég ætlaði bara að setja hann yfir markmanninn og í markið, það tókst,“ sagði Aldís um markið sitt sem hún kláraði fallega yfir markvörð Víkinga.
Aldís María lék með Hömrunum í 2. deild á síðasta tímabili en ákvað að færa sig yfir í Tindastól fyrir þetta tímabil.
„Mér líður mjög vel á Króknum og þetta er mjög fín tilbreyting. Jónsi sannfærði mig og ég ákvað að prófa. Ég sé ekki eftir því,“ sagði Aldís María um vistaskiptin en hægt er að horfa á allt viðtalið við hana í spilaranum hér að ofan.