Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fös 03. júlí 2020 09:22
Magnús Már Einarsson
Sane til Bayern Munchen (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Bayern Munchen hefur keypt kantmanninn Leroy Sane frá Manchester City.

Kaupverðið hljóðar upp á 44,7 milljónir punda en með bónusum gæti það hækkað upp í 54,8 milljónir punda.

Sane kom til Manchester City frá Schalke á 37 milljónir punda árið 2016 og varð tvívegis enskur meistari með liðinu.

„Ég vil vinna eins marga titla og mögulegt er með Bayern og Meistaradeildin er aðal markmiðið," sagði Sane eftir undirskrift hjá Bayern.

Hinn 24 ára gamli Sane mun hefja æfingar með Bayern í næstu viku en hann getur þó ekki spilað með liðinu í Meistaradeildinni í ágúst.
Athugasemdir
banner
banner
banner