Fotbolti.net
03.07.21 - 16:44
Magnús Þór Jónsson

Þorvaldur: Vorum miklu betra liðið

Auglýsing
Þorvaldur: Vorum miklu betra liðið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjörnumenn máttu þola tap á heimavelli í dag þegar að Keflvíkingar kipptu öllum þremur stigunum með sér eftir Reykjanesbrautinni.

„Þetta eru gríðarleg vonbrigði. Mikið svekkelsi að fá á sig þessi mörk sem voru klaufaleg í leik þar sem mér fannst við góðir í byrjun. Líklega besta byrjun okkar í sumar. Verðum óþolinmóðir og erum allt í einu komnir 0-3 undir í byrjun seinni. Héldum áfram og það hefði verið mjög sanngjarnt að við hefðum jafnað. Þeir voru gríðarlega heppnir en börðust fyrir lífi sínu í lokin."
Sagði Þorvaldur Örlygsson strax eftir leik. Hvað hendir eftir 20 mínútur þegar Stjarnan missir dampinn?

„Þegar menn skora ekki þá kemur upp vonleysi og pirringur og þeir eru góðir í því að hlaupa á lið. Við fáum á okkur tvö mörk úr varnarhorni sem er klaufalegt og við vorum okkar versti óvinur í því."

Næsta verkefni er Evrópukeppni, hvernig kemur hún inn í mótið fyrir Stjörnumenn.

„Fínt að fá Evrópuleikinn núna og smá hvíld í tengslum við hann.
Við hljótum að vera sammála því að mótið er raðað alltof þétt og það kemur niður á gæðum og eykur meiðsli. Við hefðum átt að teygja mótið fram í október og þá fengi fólk kannski meira fyrir peninginn."


Nánar er rætt við Þorvald í viðtalinu sem fylgir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.