Joey Gibbs, framherji Keflavíkur, hefur spilað sinn síðsata leik fyrir félagið í bili en hann heldur til Ástralíu á morgun.
Gibbs kom til Keflavíkur fyrir tveimur árum og hjálpaði liðinu að komast upp í efstu deild með því að skora 21 mark á sínu fyrsta tímabili.
Hann gerði 10 mörk í Pepsi Max-deildinni á síðasta ári er liðið bjargaði sér frá falli en hefur aðeins gert eitt mark í níu leikjum í Bestu deildinni í sumar.
Fótbolti.net greindi frá því í mars að Gibbs yrði ekkert með Keflavík í júlí vegna persónulegra ástæðna en hann lék sinn síðasta leik með liðinu í 3-1 sigrinum á Fram í kvöld.
Hann heldur til Ástralíu á morgun en Gibbs gaf ekki kost á sér í viðtal við Fótbolta.net eftir leikinn.
Sjá einnig:
Joey Gibbs missir af hluta tímabilsins vegna persónulegra ástæðna
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir