Maggi kominn á toppinn: Horfi ekki mikið á töfluna


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Frábær liðsheild, sigldum þessum sigri í höfn og mikil trú á þessu sem við erum að gera" sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar eftir 1-0 sigur gegn íR á útivelli.
„Alltaf erfitt að mæta ÍR, sérstaklega hérna í Breiðholtinu. Þeir eru mjög öflugir á heimavelli og ég gæti ekki verið ánægðari með það að landa þessum sigri."
Maggi var ánægður með varnarframmistöðuna í kvöld.
„Varnarlega finnst mér við vera frábærir, mér fannst þeir ekki skapa sér mikið af færum. Þetta var lokaður leikur og við skorum snemma og vörðum forskotið vel eftir það. Við fengum alveg færi til að bæta við öðru marki í seinni hálfleik. Það hefði kannski verið betra fyrir hjartað á manni að hafa sett það."
Maggi segir að Afturelding þurfti að sýna öðruvísi varnarleik í dag en í síðasta leik gegn ÍR.
„Þeir skoruðu sjö mörk á okkur í síðasta leik, þannig að við þurftum kannski að sýna öðruvísi varnarleik í dag en við gerðum þá á móti þeim. Ég held að kvótinn af mörkum hjá þessum liðum hafi klárast á þessu tímabili í þeim leik. Við nálguðumst þennan leik aðeins öðruvísi en þann leik og það skilaði sér."
Þróttur tapaði gegn Njarðvík í dag og er þá Afturelding komin á toppinn í deildinni.
„Já, þú segir mér fréttir með það. Ég er ekki að horfa mikið á töfluna við erum bara að einbeita á sjálfan okkur og það sem við getum stjórnað sem eru úrslitin okkar. Það er bara næsti leikur á móti Völsungi á Húsavík."
Full viðtal í spilaranum fyrir ofan


