Wijnaldum og Henderson sameinast á ný (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Gini Wijnaldum er genginn til liðs við Al-Ettifaq í Sádí-Arabíu frá PSG. Kaupverðið er talið vera í kringum 10 milljónir evra.
Hann gerir þriggja ára samning við félagið.
Wijnaldum gekk til liðs við PSG árið 2021 eftir fimm ára dvöl hjá Liverpool þar sem hann vann ensku úrvalsdeildina og Meistaradeildina.
Hann hittir fyrrum liðsfélaga sinn frá tíma sínum hjá Liverpool í Sádí-Arabíu en Jordan Henderson gekk til liðs við félagið í sumar. Þá er Steven Gerrard, fyrrum leikmaður Liverpool stjóri Al-Ettifaq.
??? ???? ?? ???? ????
— ???? ??????? (@Ettifaq) September 2, 2023
???????? ????? ????????#??????? | #????????_?????? | @GWijnaldum pic.twitter.com/hwGlZUUM5d




