Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   lau 03. október 2020 17:49
Ívan Guðjón Baldursson
Raul Jimenez skrifar undir nýjan samning við Wolves (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Wolves var að gera nýjan samning við eina af sínu skærustu stjörnum, sóknarmanninum vinnusama Raul Jimenez.

Jimenez er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Úlfana. Hann hefur skorað 46 mörk í 103 leikjum á tveimur árum hjá félaginu.

Jimenez er algjör lykilmaður í liði Úlfanna og mexíkóska landsliðsins þar sem hann hefur skorað 24 sinnum í 82 leikjum.

Jimenez er 29 ára og verður því hjá Wolves á sínum bestu árum.

Úlfarnir eru aðeins með þrjú stig eftir þrjár umferðir nýs tímabils en Jimenez er kominn með tvö mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner