Nú er í gangi leikur Everton og Totteham í ensku úrvalsdeildinni. Þegar þetta er skrifað er hálfleikur á Goodison Park, heimavelli Everton. Staðan er 0-0.
Leikurinn hefur verið ansi tilþrifalítill en hápunktur hálfleiksins var mögulega þegar VAR skoðaði hvort Davison Sanchez hefði brotið á Andre Gomes inn í teig Tottenham.
Leikurinn hefur verið ansi tilþrifalítill en hápunktur hálfleiksins var mögulega þegar VAR skoðaði hvort Davison Sanchez hefði brotið á Andre Gomes inn í teig Tottenham.
Pat Nevin, fyrrum vængmaður Everton og skoska landsliðsins, lýsir leiknum á BBC Radio 5 Live.
Nevin hefur ekki hrifist af leik liðanna og segir hann leikinn töluverð vonbrigði. Í lokin á lýsingu sinni sagði hann einfaldlega: „Þetta var einn versti hálfleikur sem ég hef séð."
Athugasemdir