Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   sun 03. nóvember 2019 18:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Son fékk rautt spjald - Gomes borinn af velli
Mynd: Getty Images
Heung-min Son var rétt í þessu að líta rauða spjaldið fyrir ljóta tæklingu á Andre Gomes í leik Tottenham og Everton í ensku úrvalsdeildinni. Staðan er 0-1 fyrir Tottenham en Dele Alli skoraði markið eftir sendingu frá Son.

Son felldi Gomes sem lenti svo á Serge Aurier, hægri bakverði Tottenham. Gomes var borinn af velli en löppin sem tók á sig höggið leit afskaplega illa út.

Son fór alveg miður sín af velli og grét. Áhorfendur leiksins hafa tjáð sig um atvikið og einhver tíst má sjá hér að neðan.






Athugasemdir
banner
banner
banner
banner