Fotbolti.net
03.11.23 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Everton að ganga frá samkomulagi við Doucouré

Það er í forgangi hjá Everton að semja við Doucoure sem er lykilmaður á miðju liðsins og gæti reynst gífurlega mikilvægur á leiktíðinni.

Það er í forgangi hjá Everton að semja við Doucoure sem er lykilmaður á miðju liðsins og gæti reynst gífurlega mikilvægur á leiktíðinni.

Canon

Mynd: Getty Images

Everton er að ganga frá nýjum samningi við miðjumanninn kröftuga Abdoulaye Doucouré, sem mun eiga 31 árs afmæli um næstu áramót.
Núverandi samningur Doucoure við Everton rennur út eftir tímabilið en nýi samningurinn gildir út næstu leiktíð og inniheldur virkjanlega möguleika á eins árs framlengingu.

Doucoure braust fram í sviðsljósið með Rennes í Frakklandi þar sem hann var lykilmaður bæði í félagsliði sínu og upp unglingalandslið Frakklands.

Hann fékk aldrei kallið upp í A-landslið Frakklands og ákvað því að gefa kost á sér með sterku liði Malí, sem inniheldur ýmsar stjörnur úr ensku úrvalsdeildinni og öðrum topp deildum í Evrópu.

Everton keypti Doucoure fyrir um 20 milljónir punda í september 2020 og hefur leikmaðurinn spilað yfir 100 leiki frá félagsskiptunum. Hann er kominn með 3 mörk í 10 fyrstu úrvalsdeildarleikjum tímabilsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.