Matti Guðmunds í viðræðum um að taka við Gróttu

Pétur Pétursson og Matthías.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pétur Pétursson og Matthías.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Matthías Guðmundsson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net í viðræðum um að taka við kvennaliði Gróttu. Það eru góðar líkur á því að hann verði næsti þjálfari liðsins.

TENGT EFNI
Hallgrímur fundaði með Gróttu en tekur ekki við - „Er ekki að flýta mér"
Þorsteinn Ingason, formaður knattspyrnudeildar Gróttu, sagði frá því í samtali við Fótbolta.net fyrr í dag að félagið væri að vonast til að tilkynna nýjan þjálfara á næstu dögum.
„Við höfum verið að leita að þjálfara fyrir meistaraflokk kvenna. Við vonumst til að tilkynna um ráðningu á nýjum þjálfara ekki síðar en um helgina."
„Við erum að vinna í málinu og erum að vonast til að geta tilkynnt um ráðningu á nýjum þjálfara á allra næstu dögum," sagði Þorsteinn við Fótbolta.net.
Matthías, sem er 43 ára gamall, hefur síðustu árin starfað sem aðstoðarþjálfari Péturs Péturssonar hjá Íslandsmeisturum Vals. Hann var á sínum tíma öflugur leikmaður sem spilaði Val, FH, Haukum og KH. Hann spilaði jafnframt fjóra A-landsleiki fyrir Íslands hönd.
Grótta hafnaði í sumar í fjórða sæti Lengjudeildar kvenna en liðið var ekki langt frá því að komast upp í Bestu deildina.