Upptaka - Staðan í enska eftir jólatörnina skoðuð
Auglýsing


Mynd: Fótbolti.net


Mynd: Fótbolti.net
Alexander Freyr Einarsson, Brynjar Ingi Erluson og Elvar Geir Magnússon sátu við hljóðnemana í dag í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu. Í spilaranum hér að ofan má hlusta á spjall þeirra um enska boltann.
Tómas Þór Þórðarson, íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu, var á línunni og sagði sína skoðun á stöðunni þegar jólatörnin er að baki. Hann segir að titilbaráttan sé líklega komin niður í þrjú lið.
Tómas Þór Þórðarson, íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu, var á línunni og sagði sína skoðun á stöðunni þegar jólatörnin er að baki. Hann segir að titilbaráttan sé líklega komin niður í þrjú lið.
„Þessi þrjú efstu lið eru tveimur skrefum framar en þessi fyrir neðan. Liverpool er að standa sig mjög vel en þeir verða líklega ekki í titilbaráttunni þrátt fyrir að hafa það yfir önnur lið að vera ekki í Evrópukeppni. Arsenal, Manchester City og Chelsea verða að berjast um þetta og ef Arsenal fær ekki framherjann sem liðið leitar að í janúar held ég að í lokin verði þetta City og Chelsea sem standa eftir,\" sagði Tómas Þór meðal annars.
Ekki var bara rætt um toppbaráttuna heldur einnig árangur Manchester United gegn efstu liðum, baráttuna á botninum og endurkomu Ole Gunnar Solskjær í enska boltann.
Ekki var bara rætt um toppbaráttuna heldur einnig árangur Manchester United gegn efstu liðum, baráttuna á botninum og endurkomu Ole Gunnar Solskjær í enska boltann.

