Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mán 04. janúar 2021 21:21
Brynjar Ingi Erluson
Arsenal lánar Saliba til Nice (Staðfest)
William Saliba
William Saliba
Mynd: Getty Images
William Saliba, leikmaður Arsenal, er genginn í raðir Nice á láni frá enska félaginu en enska félagið greinir frá samkomulaginu í kvöld.

Arsenal keypti Saliba frá St. Etienne árið 2019 en lánaði hann aftur til franska félagsins.

Hann spilaði með St. Etienne á síðustu leiktíð en gekk svo í raðir Arsenal um sumarið. Leikmaðurinn var mikilvægur í vörn St. Etienne sem komst í úrslitaleik franska bikarsins en fékk ekki að spreyta sig í úrslitaleiknum.

Saliba var ekki valinn í Evrópudeildarhóp Arsenal á þessu tímabili og hefur þá ekki fengið tækifæri með aðalliðinu en hann er nú genginn í raðir Nice á láni frá Arsenal.

Hann mun spila með Nice út þessa leiktíð en Nice fær ekki forkaupsrétt á leikmanninum.
Athugasemdir
banner
banner
banner