Brasilíski bakvörðurinn Fabio Da Silva er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Gremio í heimalandinu en þetta kom fram í tilkynningu í gær.
Fabio, sem er 32 ára gamall, er uppalinn í Fluminense, gekk í raðir Manchester United ásamt tvíburabróðir sínum, Rafael, þegar þeir voru aðeins 18 ára gamlir.
Hann spilaði aðeins 56 leiki á tíma sínum hjá United en bróðir hans fékk aðeins reglulegri spiltíma en hann.
Fabio spilaði fyrir Cardiff, Middlesbrough og QPR áður en hann samdi við Nantes í Frakklandi fyrir fimm árum.
Evrópuævintýri hans er nú lokið en hann er mættur heim til Brasilíu eftir fjórtán ár í Evrópu. Fabio skrifaði í gær undir tveggja ára samning við Gremio.
Gremio tryggði sér sæti aftur upp í efstu deild eftir síðasta tímabil en úrúgvæski framherjinn Luis Saurez samdi við félagið á dögunum. Í liðinu eru nú þrír fyrrum leikmenn úr úrvalsdeildinni en Lucas Leiva, fyrrum leikmaður Liverpool, er einnig á mála hjá Gremio.
Athugasemdir