Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 04. apríl 2021 20:40
Aksentije Milisic
Bruno: Ef við skorum ekki er sagt að við spilum illa
Mynd: Getty Images
„Við vitum að þeir eru gott lið og þeir spila góðan fótbolta. Þeir gerðu okkur erfitt fyrir en við áttum skilið að vinna," sagði Bruno Fernandes eftir sigur United á Brighton í kvöld.

Brighton komst yfir með marki Danny Welbeck og leiddu gestirnir í hálfleik. United svaraði hins vegar með tveimur í síðari hálfleiknum og vann að lokum 2-1 sigur.

„Síðari hálfleikurinn var betri en sá fyrri ef þú horfir á mörkin. Við spiluðum líka vel í fyrri hálfleik. Þegar þeir skoruðu þá gáfum við aðeins í og tókum áhættur."

„Þeir sköpuðu ekki mörg færi og ógnuðu aðalega eftir hornspyrnur. Við stjórnuðum leiknum allan tímann. Ef við skorum ekki er sagt að við spilum illa."

„Við þurfum að vinna alla leiki. Það skiptir ekki máli hvort það sé Tottenham eða ekki. Við eigum Evrópudeildina næst og núna einbeitum við okkur bara að því verkefni," sagði Bruno þegar hann var spurður út í það hvort Meistaradeildarsætið var í hús með sigri á Tottenham í næsta leik.

Athugasemdir
banner
banner