04.05.17 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Ásgeir Börkur: Farið að snúast um allt annað en fótboltann
Auglýsing

Ásgeir Börkur Ásgeirsson.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Ásgeir Börkur Ásgeirsson.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
<a href=\"http://fotbolti.net/news/04-05-2017/b-spa-thjalfara-og-fyrirlida-i-2-deild-b-2-saeti-vestri\" target=\"_blank\">Fylki er spáð 2. sæti í Inkasso-deildinni í spá þjálfara og fyrirliða</a> en þetta var opinberað í morgun. Ásgeir Börkur Ásgeirsson, fyrirliði Fylkis, er lítið að velta sér upp úr spáni.
„Mér er eiginlega alveg sama. Fótboltinn er farinn að snúast meira um það hvað þið fjölmiðlamenn talið um og hvað við tölum um inni í klefa. Allt annað en fótboltann einhverneginn,\" sagði Ásgeir Börkur.
„Okkar verkefni er bara að fara út á völl og spila fótbolta af krafti. Þetta kemur svo í ljós í lok sumars.\"
Fylkir mætir baráttuglöðu Þórsliði í fyrstu umferðinni í Árbænum á laugardaginn. Ásgeir er klár í baráttuna þar.
„Ef ég væri ekki til í slagsmál þá væri ég örugglega hættur þessu. Maður þarf að gera það sem maður er ágætur í. Við vitum nákvæmlega hvað bíður okkar í þessari deild. Það verða slagsmál og annað hvort erum við menn eða mýs,\" sagði Ásgeir Börkur.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.