Travers byrjar sinn fyrsta leik frábærlega.
Fyrri hálfleikurinn hjá Bournemouth og Tottenham var mikil skemmtun þrátt fyrir markaleysið.
Heung-Min Son, leikmaður Tottenham, fékk að líta rauða spjaldið fyrir að hrinda Jefferson Lerma undir lok fyrri hálfleiks Tottenham og Bournemouth. Þá átti Eric Dier mögulega að fjúka af velli þegar hann braut á Joshua King en ekkert var dæmt. Dier fór af velli í hálfleik fyrir Vincent Wanyama.
Mark Travers er að leika sinn fyrsta leik í markinu hjá Bournemouth og hefur verið frábær í fyrri hálfleik og varið alls fimm skot. Mark Travers er nítján ára og er yngsti markvörðurinn til að byrja sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni síðan 2006 þegar Joe Hart lék sinn fyrsta leik fyrir Manchester City.
Þetta var annað rauða spjald Son á ferlinum en hitt spjaldið fékk hann sem leikmaður Leverkusen.
Brotið má sjá með því að smella hér.

Son Heung-min has been sent off for just the second time in his career, the first coming for Bayer Leverkusen in October 2014.
— Squawka Football (@Squawka) May 4, 2019
Cheers... pic.twitter.com/2pgd0i58Wt
Mark Travers made five saves in the opening 45 minutes vs. Spurs; Jonas Lössl (7 vs. Newcastle) is the only player to make more in the first half of a Premier League game this season.
— Squawka Football (@Squawka) May 4, 2019
A brilliant debut so far. 👏 pic.twitter.com/8lWmFgQvXO
Athugasemdir