Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 04. maí 2021 22:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Einkunnir Man City og PSG: Dias bestur - Di Maria verstur
Mynd: EPA
Manchester City er komið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrsta sinn í sögu félagsins. Það tókst í kvöld með 2-0 heimasigri á PSG.

Riyad Mahrez skoraði bæði mörkin og var hann einn af þremur leikmönnum sem fengu níu í einkunnagjöf Sky Sports fyrir frammistöðu sína í leiknum.

Hinir tveir voru þeir Oleskandr Zinchenko og Ruben Dias. Sex leikmenn fengu átta og tveir sjö í liði City. Einkunnirnar voru lægri í liði PSG, tveir fengu sjö í einkunn, sex fengu sex í einkunn, tveir fengu fimm og Angel Di Maria fékk fjóra en hann fékk að líta rauða spjaldið á 69. mínútu.

Einkunnir Sky Sports:

Man City: Ederson (8), Walker (8), Dias (9), Stones (8), Zinchenko (9), Fernandinho (8), Gundogan (7), Mahrez (9), Bernardo Silva (7), Foden (8), De Bruyne (8).

PSG: Navas (7), Florenzi (6), Kimpembe (5), Marquinhos (6), Diallo (6), Verratti (7), Paredes (6), Herrera (6), Di Maria (4), Icardi (5), Neymar (6).

Varamenn: Kean (5), Draxler (6)

Maður leiksins: Ruben Dias.
Athugasemdir
banner
banner
banner