Fotbolti.net
04.06.20 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Shane Long framlengir

Shane Long í leik með Southampton.

Shane Long í leik með Southampton.

Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Shane Long hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við Southampton.

Hann er nú bundinn félaginu til sumarsins 2022.

Þessi 33 ára írski landsliðsmaður hefur verið hjá Southampton síðan hann kom frá Hull City árið 2014.

Long hefur skorað 35 mörk fyrir Dýrlingana og spilaði sinn 200 leik í mars.
„Ég elska hvernig félagið er rekið og er spenntur fyrir því sem félagið mun gera næstu ár. Ég get séð liðið stíga upp töfluna, þar sem við viljum vera og ég vil taka þátt í því," segir Long.

Stjórinn Ralph Hasenhuttl gerði einnig nýjan samning á dögunum.

„Shane er mikill fagmaður sem hefur verið mikilvægur leikmaður fyrir mig. Hann hefur skorað mikilvæg mörk og skapað mikið fyrir liðsfélaga sína," segir Hasenhuttl.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.