Ákveðið hefur verið að áhorfendur á leikjum HM megi ekki taka með sér vatnsflöskur á leiki mótsins. FIFA hefur tilkynnt þetta en um er að ræða breytingu á því sem áður hafði verið tilkynnt.
FIFA segir að um öryggisráðstafanir sé að ræða en reynt sé að koma í veg fyrir að vallargestir taki með sér hluti sem hægt sé að kasta og valda meiðslum.
FIFA segir að um öryggisráðstafanir sé að ræða en reynt sé að koma í veg fyrir að vallargestir taki með sér hluti sem hægt sé að kasta og valda meiðslum.
FIFA segist vinna að því að tryggja öryggi allra á völlunum. Stuðningsmenn geti keypt vatn á leikvögnunum og lofar því að ekki verði ofrukkað fyrir það.
Búast má við miklum hita á langflestum völlum mótsins og gæti hitastigið farið yfir hættumörk á 14 af 16 leikvöngum.
Ýmislegt varðandi HM 2026, sem mun fara fram í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada, hefur verið gagnrýnt harðlega. Miðaverð er mun hærri en aðdáendur eiga að venjast og samgöngur á vellina geta verið flóknar og dýrar.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



