Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   mið 03. júní 2026 11:00
Elvar Geir Magnússon
Bestu og verstu vellirnir á HM 2026
Mynd: EPA
HM hefst í næstu viku og fer að stærstum hluta í Bandaríkjunum en einnig verður leikið í Mexíkó og Kanada. 48 þátttökulið, 104 leikir á alls 16 leikvöngum (þar af 11 í Bandaríkjunum).

Fótbolti.net velur hér bestu og verstu leikvanga HM. Horft er til margra þátta í valinu, þar á meðal sögulegs gildis, fegurðar í arkitektúr, stærðar og leikdagsupplifunar áhorfenda.

BESTU leikvangar HM:

1. Estadio Azteca (Mexíkó) - (83.000)
Goðsagnakenndasti leikvangur mótsins. Hér fóru úrslitaleikir HM 1970 og 1986 fram. Diego Maradona og Pele skrifuðu fótboltasöguna. Leikvangurinn gekk í gegnum endurnýjun 2016 og var lagfærður enn frekar fyrir þetta mót til að bæta aðstöðu áhorfenda. Hér verður opnunarleikur HM og fjórir aðrir leikir.

2. Mercedes-Benz leikvangurinn (Atlanta, Bandaríkin) - (75.000)
Var vígður 2017 og er einn frægasti íþróttaleikvangur Bandaríkjanna. Með framtíðarlegt útlit, lokanlegt þak og byggður allri nýjustu tækni fyrir leikdagsupplifun. Hringlaga skjár er kringum völlinn. Meðal leikja sem fara fram hér er annar af undanúrslitaleikjunum.

3. SoFi leikvangurinn (Los Angeles, Bandaríkin) - (70.000)
Magnaður nútímalegur leikvangur með einni rosalegustu stöðutöflu sem hefur sést í íþróttum. Þetta er dýrasti leikvangur heims og þar spila NFL-liðin Los Angeles Rams og Los Angeles Chargers.

4. AT&T leikvangurinn (Texas, Bandaríkin) - (94.000)
Heimavöllur Dallas Cowboys er stærsti leikvangur mótsins. Hér verður meðal annars annar undanúrslitaleikur HM spilaður.

5. Estadio BBVA (Monterrey, Mexíkó) - (53.500)
Glæsilegur leikvangur í geggjuðu umhverfi.



VERSTU leikvangar HM:

1. BMO Field (Toronto, Kanada) - (45.000)
Ómögulegur völlur með lélegri aðstöðu og vafasömum bráðabirgðastúkum. Ég skrifaði pistil um völlinn og nenni ekki að eyða fleiri orðum. Langversti völlur HM.
   07.04.2026 12:05
Algjörlega óboðlegur HM völlur

2. Arrowhead Stadium (Kansas, Bandaríkin) - (73.000)
Elsti leikvangurinn sem Bandaríkin bjóða upp á fyrir HM. Sá leikvangur á HM sem er með verstu leikdagsupplifunina samkvæmt rannsókn en þar er meðal annars horft til fjarlægðar við veitingastaði og hótel.



Leikvangur úrslitaleiksins:

MetLife Stadium (New Jersey, Bandaríkin) - (82.500)
Ef við myndum raða öllum leikvöngum mótsins upp frá þeim bestu til þeirra verstu væri vettvangur úrslitaleiksins líklega í miðjumoði. Ógnarstórt ferlíki sem mörgum þykir nánast sálarlaus.

   06.02.2024 11:25
Valið á velli fyrir úrslitaleik HM gagnrýnt - „Sálarlaus völlur og ömurlegar samgöngur“


Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner