Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fim 04. júní 2026 23:20
Ívan Guðjón Baldursson
Þrítugur þjálfari Parma ætlar að vera áfram
Mynd: EPA
Þjálfarinn eftirsótti Carlos Cuesta hefur ákveðið að vera áfram hjá Parma eftir gott fyrsta tímabil við stjórnvölinn í Serie A.

Cuesta er ekki nema 30 ára gamall og starfaði sem aðstoðarþjálfari Mikel Arteta í fimm ár. Hann þykir einn af efnilegustu stjórum heimsfótboltans.

Parma endaði í 12.-13. sæti í efstu deild með 45 stig úr 38 umferðum á nýliðinni leiktíð.

Fabrizio Romano er meðal fréttamanna sem greina frá því að Cuesta er búinn að samþykkja að vera áfram hjá Parma þrátt fyrir áhuga frá félagsliðum víða um Evrópu.

Hann á eitt ár eftir af samningi og er í viðræðum við félagið um nýjan samning á bættum kjörum.

   24.05.2026 09:30
Þrítugum þjálfara Parma hrósað: Lærði mikið af Arteta


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner