Íslenska kvennalandsliðið spilar á morgun afar mikilvægan leik gegn Úkraínu í undankeppni HM. Er það stór leikur í þeirri vegferð Íslands að komast á HM í fyrsta sinn.
Sveindís Jane Jónsdóttir verður ekki með íslenska landsliðinu í komandi landsleikjum vegna meiðsla og það er högg fyrir liðið. En á sama tíma er það líka tækifæri fyrir aðra leikmenn að sýna sig og sanna.
Sveindís Jane Jónsdóttir verður ekki með íslenska landsliðinu í komandi landsleikjum vegna meiðsla og það er högg fyrir liðið. En á sama tíma er það líka tækifæri fyrir aðra leikmenn að sýna sig og sanna.
Fréttamaður Fótbolta.net ákvað að taka saman nokkrar sviðsmyndir fyrir leikinn á móti Úkraínu hvernig lið Íslands gæti litið út í leiknum.
Það er ljóst að Cecilía Rán Rúnarsdóttir verður í markinu og það er nokkuð öruggt hvernig varnarlínan mun líta út. Á miðsvæðinu er Ída Marín Hermannsdóttir að banka fast á dyrnar eftir flotta frammistöðu að undanförnu og Katla Tryggvadóttir er leikmaður til að fylgjast með, en Alexandra, Hildur og Karólína Lea eru líklegir kostir í þennan leik.
En fremst á vellinum flækjast málin og sérstaklega þar sem Sveindís er ekki með. Við verðum að finna leiðir til að fylla hennar skarð og mögulega þurfum við að breyta leikstílnum eitthvað í fjarveru hennar. Það eru þó ýmsir áhugaverðir kostir.
Í fyrstu sviðsmyndinni kemur Thelma Karen Pálmadóttir inn á vinstri vænginn í stað Sveindísar, Sandra María Jessen er fremst og Diljá Ýr Zomers leikur úti hægra megin. Thelma Karen er með mikinn hraða og getur komið með það að borðinu, en hún er líka mjög teknísk. Sandra hefur skilað mörkum í þýsku Bundesligunni og Diljá er mjög duglegur leikmaður sem getur líka skilað mörkum. Þetta gæti verið áhugaverð blanda.
Svo er það sviðsmynd tvö. Þar breytist það að við fáum Lindu Líf Boama inn í spilið. Hún hefur verið frábær eftir félagaskipti sín til Kristianstad í Svíþjóð og var lífleg í sínum fyrsta landsleikjaglugga núna síðast. Í þessari útfærslu kemur Linda Líf upp á topp í þeim mikla markaham sem hún er í þessa stundina, Sandra María færist út til vinstri og Thelma Karen fer út til hægri. Það getur verið talsvert flæði í þessari sóknarlínu þar sem Linda Líf getur einnig færst út á kantinn.
Svo er það þriðja útfærslan þar sem Hlín Eiríksdóttir kemur inn með sína reynslu. Hún hefur spilað mikinn fjölda landsleikja og er alltaf hörð í horn að taka. Þarna er Linda Líf líka inni og þú ert með Söndru Maríu og Hlín á köntunum. Þarna er möguleiki á enn meira flæði þar sem allir þessir leikmenn geta spilað fremst á vellinum.
Það verður spennandi að sjá hvað Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfarinn, gerir á morgun en hann er klárlega með möguleika í stöðunni.



