Fotbolti.net
04.07.13 - 17:00
Daníel Freyr Jónsson

Scott Carson til Wigan (Staðfest)

Scott Carson.

Scott Carson.

Canon

Mynd: Getty Images

Wigan Athletic hefur fengið til sín enska markvörðinn Scott Carson og mun hann leika með liðinu á næstu leiktíð.
Carson skrifaði undir eins árs samning hjá félaginu, en Wigan hefur næstu leiktíð í Championship-deildinni eftir að hafa fallið úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Þessi 27 ára gamli markvörður hefur undanfarin tvö ár leikið með Bursaspor í Tyrklandi, en greint var frá því á dögunum að félögin ættu í viðræðum um Carson.

Áður lék Carson meðal annars með Liverpool, Aston Villa og WBA. Þá á hann að baki fjóra leiki með enska landsliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.