Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 04. júlí 2020 20:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sölvi við fjórða dómarann: Fokka þú þér aumingi
Sölvi Geir ræðir við Einar Inga í kvöld.
Sölvi Geir ræðir við Einar Inga í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sölvi Geir Ottesen, fyrirliði Víkinga, var brjálaður, svo ekki sé meira sagt, þegar hann var rekinn af velli í leik gegn KR á Meistaravöllum fyrr í kvöld.

Leikurinn endaði 2-0 fyrir KR en Víkingar misstu þrjá menn af velli með rautt spjald.

Sölvi var annar Víkingurinn sem Helgi Mikael Jónasson rak af velli þegar hann fékk að líta rauða spjaldið á 78. mínútu.

Stefán Árni Geirsson féll til jarðar eftir viðskipti við Sölva og kom Pablo Punyed á ferðinni og ýtti Sölva á Stefán með þeim afleiðingum að Sölvi fór í andlit Stefáns Árna. Helgi Mikael lyfti upp rauða spjaldinu við litla hrifningu Sölva.

Sölvi var lengi af velli og var hann gríðarlega pirraður. Hann lét svo Einar Inga Jóhannsson, fjórða dómara, heyra það þegar hann fór út af.

„Fokkaðu þér aumingi," sagði Sölvi við Einar Inga í pirringi sínum.

Myndband af þessu er að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner