Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 04. júlí 2021 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Brian Kidd kveður Manchester City
Brian Kidd.
Brian Kidd.
Mynd: Getty Images
Þjálfarinn Brian Kidd hefur yfirgefið Manchester City eftir hvorki meira né minna en 12 ára veru hjá félaginu.

Hinn 72 ára gamli Kidd hjálpaði Man City að vinna ensku úrvalsdeildina fimm sinnum, FA-bikarinn tvisvar og enska deildabikarinn fimm sinnum.

Hann kom fyrst inn í þjálfarateymið hjá Roberto Mancini árið 2009 og var í þjálfarateyminu hjá bæði Manuel Pellegrini og Pep Guardiola, sem er núverandi stjóri City.

„Það voru forréttindi að vera hluti af svona spennandi kafla í sögu félagsins," segir Kidd sem kveður núna.

Kidd lék yfir 200 leiki með nágrönnum City, Manchester United, á leikmannaferli sínum en hann spilaði jafanframt fyrir City þó leikirnir þar hafi verið aðeins færri.
Athugasemdir
banner
banner