„Gæti ekki verið stoltari af liðinu eftir það sem á undan hefur gengið"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA er komið í úrslit Mjólkurbikarsins eftir ótrúlegan sigur eftir vítaspyrnukeppni gegn Breiðabliki á Greifavellinum í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Hallgrím Jónasson þjálfara KA eftir leikinn.
„Tilfinningin er ótrúlega sæt, ótrúlegur leikur. ég er gríðarlega ánægður með liðið, þeir sína frábæran karakter í dag. Leggjum frábært Breiðabliks lið af velli. Það er mikið mótlæti í leiknum og við höldum alltaf áfram og sýnum að við erum með frábæra karaktera í þessu liði," sagði Haddi.
KA náði forystunni í leiknum en Blikar komust yfir í uppbótartíma þegar Höskuldur Gunnlaugsson skoraði beint úr aukaspyrnu. Haddi var ekki ánægður með þann dóm sem og vítaspyrnudóm í framlengingunni.
„Við upplifðum eins og þessir dómar voru ekki með okkur, mér fannst það rangt en ég þarf að sjá það betur. Við lendum undir en komum til baka þannig þetta er hálfgerð brekka allan tíman, mörg lið hefðu brotnað, Blikar eru frábærir þegar þeir komast yfir. Ég gæti ekki verið stoltari af liðinu eftir það sem á undan hefur gengið," sagði Haddi.
„VIð vissum hvað við þurftum að gera til að eiga góða möguleika á að skora á móti þeim og fannst við gera það vel, það vantaði bara gæðin á síðasta helmingnum en við gerðum það sem við þurftum. Við erum komnir á Laugardalsvöll, þetta var brekka en mér fannst liðið fara áfram sem átti það skilið."





