Hlynur Freyr: Allir sem horfðu á leikinn sáu gæðin í honum
Auglýsing

Hlynur skrifar eiginhandaráritun fyrir ungan aðdáanda eftir leikinn í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

„Þetta er mjög svekkjandi, fáum mark á okkur úr föstu leikatriði sem var eitthvað sem við vildum bæta fyrir mótið. En við sýndum karakter að koma einu marki inn einum færri," sagði Hlynur Freyr Karlsson, fyrirliði U19 landsliðsins, eftir tap gegn Spáni í fyrsta leik á EM.
Spánverjar voru með mikla yfirburði í fyrri hálfleik og leiddu sanngjarnt í hálfleik.

„Það var drullu erfitt en við erum gríðarlega þéttir og geggjað lið og erum tilbúnir að hlaupa í 90 mínútur. Það er alltaf erfitt að vera undir þegar maður er ekki mikið með boltann."
Hlynur var spurður sérstaklega út í leikmann númer tíu hjá Spáni, Ilias Akhomach, sem gekk í raðir Villarreal frá Barcelona á dögunum.
„Það sáu allir gæðin í honum sem horfðu á leikinn í dag, hann er mjög góður. En svona er þetta, við þurfum bara að taka á svona mönnum."
Hlynur segir að í hálfleik hafi verið talað um að halda áfram að berjast og vera þéttir. „Það er það sem við gerðum, það vantaði bara herslumuninn, eitt mark."
Ágúst Orri Þorsteinson minnkaði muninn fyrir Ísland í lok leiks og strákarnir höfðu trú á að jöfnunarmarkið gæti komið. „Algjörlega, íslenska geðveikin allt í gegn. En við náðum ekki inn seinna markinu, orðnir drullu þreyttir einum færri. En ég er ánægður með að hafa samt komið inn marki."
Næsti leikur er gegn frændum okkar frá Noregi. En það verður enginn vinskapur á meðan þeim leik stendur. „Alls ekki, það skiptir ekki máli á móti hverjum við erum að keppa. Við ætlum bara að spila okkar leik og vera grjótharðir eins og alltaf."
„Þetta er 100% lykilleikur, verðum bara að vinna hann," sagði Hlynur að lokum.

Ilias var öflugur í dag.

Mynd: Getty Images