Valorie: Elska að klæðast Selfosstreyjunni
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valorie Nicole O´Brien þjálfari Selfoss var ánægð með frammistöðu síns liðs eftir markalaust jafntefli gegn Breiðablik í kvöld.
„Ég er ánægð. Við náðum í stig og það var það sem við ætluðum að gera. Við erum búnar að vera að fá á okkur mikið af mörkum og við vissum að við gætum haldið hreinu. Það er það sem við komum hingað til að gera og erum ánægðar með það.”
Valorie þurfti að gera fimm breytingar á liði sínu frá því í síðustu umferð en nokkrir lykilmenn Selfoss eru farnar til Bandaríkjanna í nám. Hún segist ekki hafa haft áhyggjur af því.
„Við gerum alltaf allt saman. Leikmenn duttu út og leikmenn komu inn og stigu upp. Það er það sem við viljum gera. Ég hafði ekki áhyggjur heldur trú á stelpunum sem komu inn í liðið. Þær stóðu sig mjög vel.”
Valorie var sjálf í liði Selfoss í kvöld í fyrsta skipti í sumar og átti virkilega góðan leik.
„Það var frábært. Ég elska að klæðast Selfoss-treyjunni og vil gera allt til að hjálpa klúbbnum og liðinu. Ég var bara ein af þeim. Allar gerðu það sem þær þurftu að gera og þetta var gaman.”
„Ég veit ekki hvort ég spili út tímabilið. Við tökum einn leik í einu. Það eru meiðsli hér og þar og það er bara gott að geta stigið inn ef á þarf að halda og það er það sem ég er hér til að gera. Tökum einn leik í einu.”
Katrín Ýr Friðgeirsdóttir, hægri bakvörður Selfoss, þurfti að fara útaf eftir um klukkustundarleik og meiðslin litu alls ekki vel út. Valorie vissi ekki meira um alvarleika meiðslanna strax eftir leik enda bara nýstigin af vellinum sjálf.
„Ég veit ekkert út frá læknisfræðilegu sjónarhorni en hún heldur að það gætu hafa verið krossböndin. Hún hefur lent í því áður. Ég veit annars ekki meira. Var bara að koma út af vellinum. En þetta hefur ekkert að gera með völlinn sjálfan. Hann var frábær og gott að spila á honum.”