Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
   fim 04. ágúst 2022 23:15
Alexandra Bía Sumarliðadóttir
Álfhildur Rósa: Fannst við mjög solid í dag
Kvenaboltinn
Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar R.
Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar R.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar var að vonum sátt eftir 2-0 útisigur á Aftureldingu í Bestu deild kvenna í kvöld.

„Bara ótrúlega gott að ná þessum þremur stigum. Sérstaklega þegar við erum að koma aftur til baka, það er stundum smá erfitt en mér fannst við mjög solid í dag," sagði Álfhildur í viðtali beint eftir leik.

„Í fyrri hálfleik fannst mér við vera með yfirhöndina, vorum eiginlega allan tímann með boltann. Það kom kafli í seinni hálfleik þar sem var smá ströggl á okkur, ég held að það hafi verið eftir fyrsta markið okkar. En svo um leið og við náðum öðru markinu inn þá fannst mér þetta vera komið."


Lestu um leikinn: Afturelding 0 -  2 Þróttur R.

Það var lengi vel markalaust í leiknum en Þróttur náði forystunni á 74. mínútu leiksins.

„Það var smá bras að reyna að koma boltanum inn en við vorum að skapa góð færi en það vantaði að koma honum inn."

Þróttur er sem stendur í 4. sæti deildarinnar og segist Álfhildur vera sátt við þá stöðu.

„Já auðvitað, nú er þetta bara byrjað aftur og maður verður að koma sér í gírinn. Það er mjög gott að vera á þessum stað í deildinni, þannig bara halda áfram svona," sagði Álfhildur Rósa.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


Athugasemdir
banner
banner
banner