31.07.26 - 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Ég held að Haaland muni hundrað prósent spila með Leeds"

Erling Braut Haaland.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Erling Braut Haaland.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
„Ég er að segja þér það að þegar þú verður Leedsari þá er það baktería sem fer aldrei," segir Þorkell Máni Pétursson við Fótbolta.net.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 30. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast neðst í fréttinni, en boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

Nefnir hann eitt áhugavert dæmi um mann með þessa bakteríu.
„Við sjáum það á stærsta vörumerki fótboltans í dag, Erling Braut Haaland. Það þarf ekki mikla leit til að sjá hann segja opinberlega að hann haldi með Leeds United þrátt fyrir að vera leikmaður Manchester City. Hann hefur aldrei spilað með Leeds en fagnaði ekki þegar hann skoraði tvö mörk á Elland Road. Það er það sem gerir þetta félag svo sérstakt. Menn taka bara ástfóstri við það og gefa það aldrei frá sér.“
Faðir Haaland spilaði með Leeds á sínum tíma og hann fæddist í borginni.
„Ég held að Haaland muni hundrað prósent spila með Leeds. Næsta skref hjá honum er að fara til Real Madrid og svo mun hann alltaf koma. Ég er mjög hræddur um að það verði ekki fyrr en seint á ferlinum, en það kæmi mér verulega á óvart ef hann spilar aldrei með Leeds. Það er þekkt myndband þegar hann er að verða ein stærsta stjarna heims og hittir Stuart Dallas, þáverandi leikmann Leeds, í vináttuleik Noregs og Norður-Írlands. Hann heimtar að fá treyjuna hans. Svo eru líka þekkt samtöl milli Haaland og James Milner í Meistaradeildinni þar sem þeir voru að ræða Leeds sín á milli. Þetta félag er bara ekki eins og hin félögin. Það er mjög sérstakt að vera Leedsari.“

TENGT EFNI