Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 04. ágúst 2022 17:21
Stefán Marteinn Ólafsson
Byrjunarlið Breiðabliks gegn Basaksehir: Davíð kemur aftur inn
Breiðablik bíður erfitt verkefni á Kópavogsvelli
Breiðablik bíður erfitt verkefni á Kópavogsvelli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik fá verðugt verkefni í kvöld þegar þeir mæta risunum frá Tyrklandi í  Istanbul Basaksehir þegar 3.umferð Sambandsdeildarinnar hefur göngu sína. 

Um er að ræða fyrri leik liðana sem fer fram á Kópavogsvelli í kvöld klukkan 18:45. Síðari leikurinn fer svo fram ytra viku seinna eða 11.ágúst.


Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  3 Istanbul Basaksehir

Breiðablik gerir eina breytingu á sínu liði frá síðasta leik gegn ÍA en inn í liðið kemur Davíð Ingvarsson sem tók útleikbann gegn ÍA fyrir Kristinn Steindórsson.

Breiðablik

1. Antor Ari Einarsson
3. Oliver Sigurjónsson
4. Damir Muminovic
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson
11. Gísli Eyjólfsson
14. Jason Daði Svanþórsson
16. Dagur Dan Þórhallsson
21.Viktor Örn Margeirsson
22. Ísak Snær Þorvaldsson
25. Davíð Ingvarsson 


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner