Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 04. ágúst 2022 17:18
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Víkings gegn Lech Poznan: Hansen ekki með
Pablo Punyed er í byrjunarliði Víkings.
Pablo Punyed er í byrjunarliði Víkings.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur leikur fyrri leik sinn gegn pólska liðinu Lech Poznan klukkan 18:45 í Fossvoginum. Um er að ræða viðureign í þriðju umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Anton Freyr Jónsson verður við lyklaborðið og textalýsir frá heimavelli hamingjunnar.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 -  0 Lech Poznan

Varnarmaðurinn Halldór Smári Sigurðsson er á meiðslalista Víkinga en hann spilar ekki næstu sex til sjö vikurnar. Þá er danski sóknarmaðurinn Nikolaj Hansen einnig að glíma við meiðsli og getur ekki tekið þátt í leiknum.

Byrjunarlið Víkings:
1. Ingvar Jónsson (m)
3. Logi Tómasson
4. Oliver Ekroth
5. Kyle McLagan
7. Erlingur Agnarsson
8. Viktor Örlygur Andrason
10. Pablo Punyed
17. Ari Sigurpálsson
18. Birnir Snær Ingason
20. Júlíus Magnússon
22. Karl Friðleifur Gunnarsson

Athugasemdir
banner
banner
banner