Fotbolti.net
04.08.22 - 07:20
Ívan Guðjón Baldursson

Southend skírði stúkuna óvart eftir raðmorðingja

Southend skírði stúkuna óvart eftir raðmorðingja
Canon

Mynd: Swindon

Southend United er að skrapa saman pening og er búið að selja nöfnin á öllum pörtum stúku heimavallar sins.

Nýjasta nafnið hefur þó verið eitthvað vanhugsað vegna þess að vesturhluti leikvangarins heitir núna Gilbert & Rose West Stand vegna mikilvægs styrks frá fasteignasölu Gilbert & Rose.

Það sem félagið hugsaði ekki út í er að einn af kaldrifjaðari raðmorðingjum Englandssögunnar heitir einmitt Rose West og var færð til fangelsisvistar fyrir tæplega 30 árum, þar sem hún dúsir enn og mun gera þar til hún andast.

Rose og eiginmaður hennar, Fred, rændu, pyntuðu og myrtu minnst níu ungar konur á árunum 1973 til 1987 en Rose hafði áður myrt átta ára gamla stjúpdóttur sína árið 1971.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.