04.09.16 - 12:00
Elvar Geir Magnússon
Kári Árna: Hallærisleg sala hjá Malmö
Auglýsing

Kári er alls ekki sáttur við að missa Viðar frá Malmö. Hér er hann á æfingu Íslands á föstudaginn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðsmaðurinn Kári Árnason segir það grátlegt fyrir Malmö að hafa misst Viðar Örn Kjartansson. Sænska liðið er í bullandi titilbaráttu og Viðar hefur raðað inn mörkum en var á dögunum seldur til Maccabi Tel Aviv í Ísrael.
Sænskir fjölmiðlar fóru að tala um að Viðar væri ekki að „passa inn í klefann\", samskipti hans við samherja væru ekki nægilega góð. Þessum fréttum hafa Viðar og leikmenn sjálfir hafnað.

„Viðar er gríðarlega mikilvægur fyrir liðið. Mér fannst leiðinlegt hvað fjölmiðlar fóru að tala um að hann passaði ekki í hópinn, það var algjörlega fáránlegt og pirraði mig mjög mikið. Hann er hvers manns hugljúfi,\" segir Kári.
„Sænskir fjölmiðlar reyna að búa til einhverja vitleysu og skálda upp leiðindi innan leikmannahópa og svo fram vegis.\"
Stuðningsmenn Malmö eru mjög pirraðir yfir því að hafa misst Viðar og Kári skilur þá fullkomlega.
„Ég skil pirringinn fullkomlega. Mér finnst þetta hallærisleg sala að vera að selja aðal markaskorarann. Hann hefur bjargað leikjum hjá okkur sem hefðu endað 0-0. Hann er alltaf réttur maður á réttum stað og klárar þá leiki. Þegar við erum að berjast um gullið ertu að taka mikla áhættu með því að selja þannig mann.\"
Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan en það var tekið í Kænugarði í gær þar sem íslenska landsliðið býr sig undir fyrsta leik í undankeppni HM. Í fyrri hluta viðtalsins er rætt um