Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 04. september 2020 21:11
Ívan Guðjón Baldursson
Ceballos lánaður aftur til Arsenal (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Arsenal er búið að tryggja sér spænska miðjumanninn Dani Ceballos á lánssamningi út tímabilið. Þetta verður annað tímabilið í röð sem Ceballos er lánaður til Arsenal.

Ceballos er 24 ára miðjumaður sem festi sig í sessi sem mikilvægur hlekkur við hlið Granit Xhaka á miðju Arsenal á lokakafla síðasta tímabils.

Í heildina spilaði Spánverjinn 36 leiki fyrir Arsenal á síðustu leiktíð en hann á einnig 56 leiki að baki fyrir Real Madrid.

Ceballos á níu A-landsleiki að baki fyrir Spán og var meðal skærustu stjarna U21 liðsins þar sem hann skoraði 8 mörk í 29 leikjum.


Athugasemdir
banner
banner