Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 04. september 2020 20:51
Ívan Guðjón Baldursson
Þróttur R. fær varnarmann frá Crystal Palace (Staðfest)
Tyler í æfingaleik með Crystal Palace.
Tyler í æfingaleik með Crystal Palace.
Mynd: Getty Images
Lengjudeildarlið Þróttar R. hefur tryggt sér 22 ára varnarmann að láni frá Crystal Palace.

Sá heitir Tyler Brown og er vinstri bakvörður að upplagi en getur einnig spilað sem hafsent.

Tyler hefur spilað fyrir U23 lið Crystal Palace undanfarin ár og fór meðal annars á reynslu til QPR í fyrra.

Það verður gríðarlega spennandi að sjá hvernig Tyler tekst að fóta sig í íslenska boltanum. Hans bíður verðugt verkefni þar sem Þróttur er í bullandi fallbaráttu.

Þróttur er með 8 stig eftir 13 umferðir, þremur stigum frá Leikni F. í öruggu sæti.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner