Fotbolti.net
04.09.23 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Bellegarde kominn til Wolverhampton (Staðfest)

Bellegarde kominn til Wolverhampton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wolves staðfesti félagsskipti franska miðjumannsins Jean-Ricner Bellegarde til sín frá Strasbourg í Frakklandi á lokadegi félagsskiptaglugga sumarsins.

Bellegarde er 25 ára gamall og leikur sem varnarsinnaður miðjumaður að upplagi en getur einnig spilað á vinstri kanti og sem vinstri bakvörður.

Hann hefur verið fastamaður í liði Strasbourg undanfarin ár og gerir fimm ára samning við Wolves.

Hann á að hjálpa til við að fylla í skarðið sem Matheus Nunes skilur eftir á miðju Úlfanna en það gæti reynst afar þung þraut.

Úlfarnir borga um 15 milljónir evra til að ganga frá félagsskiptunum.

Bellegarde kominn til Wolverhampton (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.