Fotbolti.net
04.09.23 - 22:57
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Carrasco kominn til Al-Shabab (Staðfest)

Carrasco á 66 landsleiki að baki fyrir Belgíu.

Carrasco á 66 landsleiki að baki fyrir Belgíu.

Canon

Mynd: EPA

Sádí-arabíska félagið Al-Shabab er búið að krækja í belgíska kantmanninn Yannick Carrasco frá Atletico Madrid fyrir 15 milljónir evra.

Carrasco er 30 ára gamall og átti aðeins eitt ár eftir af samningi hjá Atletico. Spænska stórveldið bauð honum nýjan samning í sumar en hann neitaði því tilboði og er núna farinn í aðra heimsálfu.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Carrasco yfirgefur Atletico til að spreyta sig í annarri heimsálfu, eftir að hann fór til Kína í tvö ár frá 2018 til 2020 og stóð sig frábærlega með Dalian Professional áður en hann hélt aftur til Atletico eftir að Covid-veiran braust út.

Carrasco gerir þriggja ára samning við Al-Shabab og mun spila með Ever Banega og Habib Diallo í vetur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.