Fotbolti.net
04.09.23 - 22:34
Ívan Guðjón Baldursson

Eric Bailly til Besiktas (Staðfest)

Eric Bailly til Besiktas (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Tyrkneska stórveldið Besiktas hefur verið duglegt á leikmannamarkaðinum í sumar og er Eric Bailly níundi leikmaðurinn sem gengur til liðs við félagið.

Besiktas fær varnarmanninn úr röðum Manchester United og er óljóst hvernig samkomulag félagið gerir við hann. Samningslengd og kaupverð eru óljós, en fótboltafréttamaðurinn Fabrizio Romano heldur því fram að Bailly sé búinn að gera eins árs samning.

Bailly er 29 ára gamall og spilaði 113 leiki á tíma sínum hjá Man Utd, eftir að Rauðu djöflarnir keyptu hann frá Villarreal fyrir um 30 milljónir punda sumarið 2016.

Besiktas er einnig búið að krækja í Milot Rashica frá Norwich, Arthur Masuaku frá West Ham og Daniel Amartey frá Leicester í sumar - auk Alex Oxlade-Chamberlain og Ante Rebic sem koma úr röðum Liverpool og AC Milan.

Bailly á 49 landsleiki að baki fyrir Fílabeinsströndina og hefur einnig leikið fyrir Espanyol og Marseille á ferlinum, auk Villarreal.


Eric Bailly til Besiktas (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.