Fotbolti.net
04.09.23 - 22:49
Ívan Guðjón Baldursson

Galatasaray kaupir Sanchez - Ndombele kemur á láni (Staðfest)

Galatasaray kaupir Sanchez - Ndombele kemur á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tyrkneska stórveldið Galatasaray er búið að staðfesta komu tveggja öflugra leikmanna úr röðum Tottenham Hotspur. Annar þeirra er franski miðjumaðurinn Tanguy Ndombele og hinn er kólumbíski varnarmaðurinn Davinson Sanchez. 

Ndombele er 26 ára miðjumaður með tvö ár eftir af samningi hjá Spurs, en hann er dýrasti leikmaður í sögu félagsins eftir að hafa verið keyptur á rétt tæpar 60 milljónir punda sumarið 2019.

Ndombele fann aldrei taktinn hjá Tottenham en gerði fína hluti á láni hjá Napoli á síðustu leiktíð, þar sem hann varð Ítalíumeistari leikandi aukahlutverk með liðinu.

Tottenham vonast til að Ndombele gangi vel í tyrkneska boltanum svo Galatasaray kjósi að nýta kaupákvæði sem fylgir með lánssamningnum. Ákvæðið í samningi Ndombele hljóðar upp á 15 milljónir evra, sem er rúmlega 50 milljónum minna en leikmaðurinn kostaði fyrir fjórum árum síðan.

Sanchez er 27 ára og átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum hjá Spurs, en Galatasaray borgar tæpar 10 milljónir evra fyrir félagsskiptin. Sanchez er búinn að gera fjögurra ára samning við félagið með möguleika á auka ári.

Sanchez og Ndombele eiga samtals rétt tæpa 300 leiki að baki fyrir Tottenham og verða vafalaust mikill liðsstyrkur í tyrknesku deildinni.

Þeir munu leika með gæðamiklum fótboltamönnum á borð við Mauro Icardi, Wilfried Zaha, Dries Mertens, Hakim Ziyech og Lucas Torreira sem eru allir á mála hjá Galatasaray sem stefnir á að verja Tyrklandsmeistaratitilinn.

Galatasaray kaupir Sanchez - Ndombele kemur á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.