
Guaita er nýr markvörður Celta Vigo (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Spænski markvörðurinn Vicente Guaita er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Celta Vigo á Spáni eftir fimm ár hjá Crystal Palace.
Palace hleypti Guaita burt á frjálsri sölu þó hann hafi átt eitt ár eftir af samningi. Það ríkti ósætti á milli Guaita og Roy Hodgson knattspyrnustjóra sem hætti að nota markvörðinn undir lok síðustu leiktíðar.
Guaita er 36 ára og lék 154 leiki með Palace áður en hann missti byrjunarliðssætið til Sam Johnstone í kjölfar meiðsla sem hann varð fyrir í mars.
Palace hafði hugsað sér að halda Guaita sem varamarkverði en það er ekki lengur þörf á honum eftir komu Dean Henderson frá Manchester United. Henderson mun vafalítið taka byrjunarliðssætið og vera með Johnstone sem varamarkvörð.
Hjá Celta mun Guaita berjast við Ivan Villar og Agustín Marchesín um markmannsstöðuna. Villar er 26 ára Spánverji sem virðist vera búinn að hirða byrjunarliðssætið af Marchesin, sem er 35 ára gamall Argentínumaður.
Mögulegt er að Guaita hafi betur í baráttunni og verji mark Celta í vetur, en liðið endaði aðeins þremur stigum frá fallsæti á síðustu leiktíð. Celta er komið með fjögur stig eftir fjórar umferðir á nýju tímabili.
???????????????????????????? ???? Vicente Guaita, nuevo cerrojo celeste ????
— RC Celta (@RCCelta) September 1, 2023
El experimentado portero valenciano llega al #RCCelta hasta 2024.
¡Bienvenido, @vguaita13! ????#BenvidoGuaita


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images




