Fotbolti.net
04.09.23 - 23:48
Ívan Guðjón Baldursson

Pálmi Rafn gerir þriggja ára samning við KR (Staðfest)

Pálmi Rafn gerir þriggja ára samning við KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

Pálmi Rafn Pálmason hefur verið ráðinn sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá KR og gerir hann þriggja ára samning við félagið.

Pálmi Rafn þekkir vel til hjá KR þar sem hann var lykilleikmaður liðsins á lokaárum fótboltaferilsins.

Hann tók við sem bráðabirgðaþjálfari kvennaliðs KR í júlí eftir að Perry Mclachlan var rekinn og er mikil ánægja með hans störf hjá félaginu.

KR lék í Bestu deildinni í fyrra en mun leika í neðstu deild, 2. deild, á næsta ári eftir tvö föll í röð.

„Stjórn knattspyrnudeildar treystir Pálma Rafni fyrir því mikilvæga verkefni að koma kvennaknattspyrnu KR aftur í fremstu röð," segir meðal annars í tilkynningu frá KR. „Til hamingju Pálmi, við hlökkum til að sjá þig takast á við komandi verkefni."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.