Fotbolti.net
04.09.23 - 21:35
Ívan Guðjón Baldursson

Podence og Jovetic til Olympiakos (Staðfest)

Podence og Jovetic til Olympiakos (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Gríska stórveldið Olympiakos, sem er í eigu sömu aðila og eiga Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni, er búið að bæta sextán leikmönnum við hópinn hjá sér í sumar á meðan nítján eru farnir.

Það er því gríðarlega mikið umbreytingasumar í gangi í herbúðum Olympiakos, sem var að kynna tvo gríðarlega öfluga leikmenn til leiks sem eru báðir með reynslu úr ensku úrvalsdeildinni.

Daniel Podence kemur á lánssamningi frá Wolves sem gildir út tímabilið. Podence er 27 ára gamall og á 105 leiki að baki á þremur og hálfu ári hjá Wolves. 

Úlfarnir keyptu hann frá Olympiakos í janúar 2020 fyrir 17 milljónir punda og snýr hann aftur til Grikklands yfir veturinn. Podence átti að renna út á samningi á næsta ári en skrifar undir eins árs framlengingu við Wolves svo félagið missi hann ekki á frjálsri sölu.

Þá er sóknartengiliðurinn Stevan Jovetic kominn á frjálsri sölu eftir að hafa fallið úr efstu deild þýska boltans með Hertha Berlin á síðustu leiktíð.

Jovetic er 33 ára Svartfellingur sem hefur meðal annars leikið fyrir Fiorentina, Inter og Manchester City á sínum ferli. Hann er goðsögn í heimalandinu þar sem hann á 31 mark í 68 landsleikum.

Ekki nóg með að þessir tveir fyrrum úrvalsdeildarleikmenn séu mættir til Olympiakos, heldur náði félagið einnig að klófesta Ola Solbakken á lánssamningi frá Roma og Vicente Iborra á frjálsri sölu frá Villarreal.

Ekki nóg með það vegna þess að Omar Richards er kominn á láni frá Nottingham Forest á meðan Quini er kominn á frjálsri sölu frá Granada.

Þá eru leikmenn á borð við Mathieu Valbuena, Henry Onyekuru og Cedric Bakambu farnir burt, auk Yann M'Vila, Pajtim Kasami og Sokratis Papastathopoulos.


Jovetic lék með Sevilla í spænska boltanum.

Jovetic lék með Sevilla í spænska boltanum.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.